Ingileif og María eignuðust dreng

María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir eiga nú tvo syni.
María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir eiga nú tvo syni. Eggert Jóhannesson

Fjölmiðlakonan Ingleif Friðriksdóttir og eiginkona hennar María Rut Kristinsdóttir eignuðust dreng í nótt. María greinir frá þessu í færslu á Instagram. Þetta er annað barn þeirra hjóna, en fyrir eiga þær soninn Þorgeir, sem María átti áður en leiðir þeirra Ingileifa lágu saman. Ingileif og María gengu í það heilaga síðasta sumar á Flateyri.

„Hann er stálhraustur, 49 cm á lengd og 3226 grömm. Ég verð að segja að ég hef aldrei á ævinni séð jafn mikla áræðni og vinnusemi og ég varð vitni að í nótt. Ingileif tæklaði þetta verkefni af fullum krafti, missti aldrei móðinn og var sannkölluð valkyrja. Konur maður - what a concept! Ég sit hérna á spítalanum og er bókstaflega að rifna úr stolti. Yfir eiginkonunni minni sem ég elska af öllu hjarta og yfir þessu litla lífi sem er bara rétt að kvikna. Hann er guðdómlegur. Lífið er sannarlega rétt að byrja,“ skrifar María Rut við myndband á Instagram af fæðingarsögu þeirra. 

Barnavefur mbl.is óskar litlu fjölskyldunni til hamingju með nýjustu viðbótina!

View this post on Instagram

Kl 02:42 í nótt breyttist lífið okkar til frambúðar þegar að litla ljónið okkar kom loksins í faðminn okkar. Hann er stálhraustur, 49 cm á lengd og 3226 grömm. Ég verð að segja að ég hef aldrei á ævinni séð jafn mikla áræðni og vinnusemi og ég varð vitni að í nótt. Ingileif tæklaði þetta verkefni af fullum krafti, missti aldrei móðinn og var sannkölluð valkyrja. Konur maður - what a concept! Ég sit hérna á spítalanum og er bókstaflega að rifna úr stolti. Yfir eiginkonunni minni sem ég elska af öllu hjarta og yfir þessu litla lífi sem er bara rétt að kvikna. Hann er guðdómlegur. Lífið er sannarlega rétt að byrja ❤️ Við höfum verið galopnar með þetta ótrúlega ferli frá upphafi. Þannig að hérna er fæðingasagan okkar. Hún var dásamleg 🌈❤️

A post shared by María Rut Kristinsdóttir (@mariarut) on Aug 15, 2019 at 11:51am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert