3 mánaða í fyrstu flugferðinni

Fjölskyldan í Frogmore Cottage naut lífsins á Ibiza fyrr í …
Fjölskyldan í Frogmore Cottage naut lífsins á Ibiza fyrr í mánuðinum. AFP

Archie Harrison Mountbatten-Windsor var aðeins rétt rúmlega 3 mánaða þegar hann fór í fyrsta skipti til útlanda. Meghan hertogaynja og Harry Bretaprins ákváðu að fara í sex daga til Ibiza í fjölskyldufrí 6. ágúst til að fagna afmæli Meghan. 

Fjölskyldan flaug með einkaþotu til Ibiza þar sem hún dvaldist í friði fyrir öllum fjölmiðlum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Meghan fer til Ibiza, en hún fór þangað með vinkonum sínum árið 2016. Hún er sögð vera einstaklega hrifin af eyjunni. 

Þau eru ekki eina kóngafólkið sem fór til framandi eyjar í sumarfríinu en Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja fóru til Mustique í Karíbahafi fyrr í sumar til að fagna afmæli Georgs prins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert