Stolt af slitinu á meðgöngunni

Ashley Graham birti þessa mynd af líkama sínum á Instagram.
Ashley Graham birti þessa mynd af líkama sínum á Instagram. Skjáskot/Instagram

Fyrirsætan Ashley Graham greindi frá því í síðustu viku að hún ætti von á sínu fyrsta barni. Graham sem er dugleg að breiða út boðskap líkamsvirðingar er strax byrjuð að sýna frá því hvernig líkami hennar er á meðgöngunni. Graham deildi nærmynd af sliti á líkama sínum á Instagram sunnudaginn. 

Á myndinni má sjá líkama Graham á hlið. Heldur hún um brjóst sín og sýnir slitið á þeim. Einnig má sjá stækkandi maga hennar og slit á mjöðmum og lærum. 

„Sama sama en aðeins öðruvísi,“ skrifaði Graham sem fékk mikið lof frá konum víða um heim. Þykir hún sýna hvernig konur líta í alvörunni út á myndinni. 

Ashley Graham.
Ashley Graham. mbl.is/AFP
View this post on Instagram

same same but a little different

A post shared by A S H L E Y G R A H A M (@ashleygraham) on Aug 18, 2019 at 9:07am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert