Kardashian ekki tilbúin í fleiri börn

Kim Kardashian á í nógu að snúast með fjögur börn.
Kim Kardashian á í nógu að snúast með fjögur börn. mbl.is/AFP

Það er ekki von á fimmta barninu frá Kim Kardashian og Kanye West ef marka má svör raunveruleikastjörnunnar á Instagram á dögunum. Aðdáandi spurði hvort hana langaði í fleiri börn og Kardashian svaraði af hreinskilni. 

„Ég elska börnin mín svo mikið en ég get ekki höndlað meira en fjögur núna vegna þess hversu upptekin ég er,“ sagði hin 38 ára gamla móðir. „Og börnin mín hvert og eitt þurfa svo mikla athygli.“

Kim Kardashian og Kanye West hafa verið dugleg að fjölga sér síðustu árin. Kardashian gekk sjálf með þau North og Saint sem eru sex og þriggja ára. Hjónin fengu svo staðgöngumæður til þess að ganga með Chicago sem er eins árs og Psalm sem fæddist í maí. 

Kim Kardashian West með öll börnin fjögur.
Kim Kardashian West með öll börnin fjögur. Ljósmynd/skjáskot Instagram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert