Bloom vill eignast barn með Perry

Orlando Bloom og Katy Perry.
Orlando Bloom og Katy Perry. mbl.is/AFP

Leikarinn Orlando Bloom og söngkonan Katy Perry trúlofuðu sig á árinu. Þau eru ekki enn gift en hafa greinilega rætt barneignir. Bloom ræddi möguleikann á stærri fjölskyldu í útvarpsþætti Howards Sterns í vikunni að því fram kemur á vef People

Bloom á átta ára gamlan son að nafni Flynn með ofurfyrirsætunni Miröndu Kerr. Flynn er að verða stóri bróðir í annað sinn en Kerr á von á öðru barni sínu með Snapchat-stofnandanum Evan Spiegel. Það er ekki útilokað að faðir hans muni einnig gera hann að stóra bróður.

„Ég elska börn. Hún er frábær með börn,“ sagði Bloom um unnustu sína og möguleikann á barneignum. „Það væri dásamlegt. Við stefnum á það.“

Bloom segir ekki alltaf auðvelt að deila forræði. Leikarinn og fyrirsætan láta þó uppeldið ganga upp en þau bera hag sonar síns fyrir brjósti. 

„Við eigum eftir að vera í lífi hvort annars það sem eftir er. Við eigum barn. Við gerum allt sem við getum,“ segist Bloom hugsa þegar sonur hans er annars vegar.

Katy Perry og Orlando Bloom.
Katy Perry og Orlando Bloom. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert