„Einstæðar mömmur geta allt“

Þórunn Antonía ásamt börnum sínum tveimur.
Þórunn Antonía ásamt börnum sínum tveimur. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Söngkonan Þórunn Antonía eignaðist barn nýverið og ákvað að skipta á íbúðinni sinni í miðborginni fyrir hús í Hveragerði þar sem fjölskylda hennar býr. Hún segir karma halda með henni og á dásamlegt líf með börnum sínum tveimur í dag.

Þórunn Antonía eignaðist dreng nýverið með Kára Viðarssyni leikara. Fyrir á hún dótturina Freyju, sem er fjögurra ára. Hún segir að gleðin og breiða brosið hennar sé ekki tilkomið vegna áreynsluleysis í lífinu nema síður sé. Hún hefur upplifað alls konar hluti og hefur tileinkað sér þrautseigju og þá ákvörðun að vera glöð í lífinu.

„Ég hef ákveðið að sjá björtu og skemmtilegu hliðarnar í lífinu, þrátt fyrir allt sem lífið leggur á okkur manneskjurnar. Ég er á því að við séum öll með verkefni í lífinu en valið sé alltaf okkar. Hvort við látum mótvindinn buga okkur eða breytum honum í meðvind.“

Þórunn seldi íbúð sína í 101 og flutti í Hveragerðí.
Þórunn seldi íbúð sína í 101 og flutti í Hveragerðí. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Eilífðarverkefni að ala sig upp

Þórunn Antonía er þekkt fyrir að segja hlutina eins og þeir eru.

„Mér finnst mikilvægt að vera einlæg, hvort heldur sem er við börnin mín eða við mig sjálfa. Ég er með fullt af brestum og mér sýnist það verða eilífðarverkefni að ala sjálfan sig upp. Það verður eitthvað svo ótrúlega ljóst þegar maður er að ala upp börn sjálfur.“

Hvernig var að verða mamma í annað sinn?

„Það var lærdómsríkt og öðruvísi. Ég finn að ástin vex á degi hverjum. Núna er sonur minn mánaðar gamall og ég elska hann meira og meira með hverjum deginum. Ég upplifði auðvitað ást, undrun, þakklæti og alls konar tilfinningar þegar ég fékk hann í fangið. Ég er hins vegar eins og svo margar konur sem eru smitaðar af samfélagslegri hugsun um að hlutirnir eiga að vera svona eða hinsegin á meðgöngu og í fæðingunni. Líkt og með klisjuna að þegar þú færð barnið þitt í fangið í fyrsta skiptið upplifirðu ást sem er engu öðru lík. Þetta er að sjálfsögðu rétt að mörgu leyti, en ástin er sterkari núna eftir mánuð heldur en hún var fyrst. Eftir þriggja daga fæðingarferli sem endaði í keisara tók við aðgerð vegna samgróninga. Þegar ég fékk drenginn minn í fangið var ég þreytt og dofin.“

mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Hluti af mér vildi fæða barnið

Þórunn Antonía segir að hún hafi upplifað fæðinguna sem fallegt ferli.

„Ég fékk ekki meðgöngueitrun eins og á fyrri meðgöngunni. Við áttum skipulagðan keisara 1. ágúst. En það var hluti af mér sem vildi missa vatnið og að fæðingarferlið myndi hefjast og mig langaði að reyna að fæða barnið sjálf. Ég missti vatnið 30. júlí og reyndi að fæða í tvo daga með „drippi“ og hjálp. Ég fékk að fara í bað og að upplifa fleiri dásamlega hluti. En hjartsláttur litla mannsins var ekki að taka vel í hríðirnar þannig að við ákváðum eftir allt saman að fara í keisara. Ég var hins vegar mjög þakklát fyrir að fá að upplifa ferlið.“

Börnin eru mér allt

Hvaða þýðingu hafa börn og fjölskyldan í lífi þínu?

„Börnin mín eru mér allt. Það er einfaldlega þannig. Ég var ekkert endilega manneskja sem hafði stór plön um barneignir áður en ég varð mamma. Það var nokkuð sem ég planaði ekki fyrir fram. Ég er þakklát fyrir þá þróun því ég er ekki týpan sem gerir plön eða er með ákveðna framtíðarsýn. En móðurhlutverkið kom mér skemmtilega á óvart. Ég hef alltaf verið mikil fjölskyldumanneskja og að verða mamma stækkaði auðvitað fjölskyldu mína, hjartað mitt og styrkti tengslin við alla í kringum mig. Ég á fullt af systkinum og foreldrum og börnin mín eiga bestu ömmur og afa sem hugsast getur og æðislega pabba. Barnæskan er heilög fyrir mér. Öll börn eiga skilið bæði mömmu og pabba eða bara foreldra sem elska þau skilyrðislaust hvernig sem sambandi þeirra er háttað.“

Hvað leggur þú þig fram um að gera daglega?

„Að fara með þakklætisbæn fyrir háttinn. Þá teljum við upp litla sem stóra þætti í lífinu og þökkum fyrir þá. Til dæmis byrjar þakklætis bænin oft svona: Takk fyrir sólina, takk fyrir lífið, takk fyrir ömmu, takk fyrir afa. Svo tekur Freyja litla við og þakkar fyrir mömmu sína, fyrir lilla bróður og stundum endar þetta í gríni og það er þakkað fyrir prumpið og svo framvegis. Það er svo ótrúlega mikilvægt að hafa húmorinn með. Húmor er mitt stærsta uppeldistól! Svo segi ég börnunum mínum daglega að ég elski þau.“

mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Mamman er öðruvísi en söngkonan

Hver er munurinn á söngkonunni og mömmunni Þórunni Antoníu?

„Ég veit ekkert hver söngkonan Þórunn Antonía er í raun og veru. Hún er kannski meiri leikkona en hitt því vinnan mín felst stundum í að mála upp einhverja ofurstjörnumynd af sjálfri mér í glansandi búningum með háu ljósin á. Á meðan mamman er mjúk og mild, syngjandi, dveljandi í draumahöll í hlýjum sokkum að skipta á bleyjum. Kitla mjúka maga og strjúka mjúkar kinnar. Ég elska að vera mamma.“

Hvað er best geymda mömmuleyndarmálið sem þér hlotnaðist í æsku?

„Að einstæðar mömmur geta allt.“

Hvaðan sækir þú orkuna þína?

„Í sameiginlega stjórnstöð allra mæðra, um leið og við konur verðum mömmur er eins og við fáum auka orku. Við fáum auka skilning og vit sem barmur heimsins geymir einhvers staðar og gefur okkur þegar við fáum börnin okkar í fangið. Annars eru góður kaffibolli, hress Motown-tónlist, vinkonusambönd og útivera ansi hressandi!“

Hver hugsar um þig?

„Þetta er góð spurning. Foreldrar mínir, systkin, vinkonur og heimurinn. Karma er á mínu bandi.“

mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Listrænt uppeldi

Hvers konar uppeldi aðhyllist þú?

„Virðingarfullt, skilningsríkt, listrænt og ástríkt. Ég er hrifin af mörgu úr „Rie“stefnunni, einnig legg ég mikla áherslu á frelsi heima við í fatavali og tónlistarsköpun. Við málum og teiknum mikið.“

Hvað er það erfiðasta við að vera foreldri?

„Að taka ábyrgð. Raunverulega á sjálfum sér til þess að geta verið foreldri. Ef barnið mitt er að taka kast, t.d. Freyja sem er fjögurra ára, næstum fimm ára, þá byrja ég á að beina augum mínum að mér sjálfri og hvernig ég hef verið við hana þann daginn. Hef ég veitt henni næga athygli? Er næg tenging? Hvað er hún raunverulega að kalla á? Í stað þess að skamma hana fyrir að vera „óþekk“ og refsa henni. Elsku börnin eru oft bara að öskra á nánd og tengingu og kunna ekki að orða það.“

Heimili Þórunnar er líflegt.
Heimili Þórunnar er líflegt. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Skipti á íbúð í Reykjavík fyrir hús í Hveragerði

Hver er sagan á bak við staðinn sem þú býrð á?

„Ég sat í afmæli hjá sex ára guðdóttur minni í Hveragerði. Umvafin bræðrum mínum og systrum og við vorum að ræða um lífið. Ég var ólétt og aðstæður mínar breyttar og ég var smá týnd varðandi hvert næsta skref yrði sem ólétt einstæð, nei ég meina sjálfstæð móðir, með bráðum tvö lítil börn. Þá segir einn af bræðrum mínum: Af hverju flytur þú ekki bara í Hveragerði? Tveir bræður mínir búa þar, pabbi minn og stjúpmóðir og ég eyði miklu af tíma mínum þar. Ég hló og hugsaði hvers vegna ekki og fór inn á fasteignaauglýsingar í símanum mínum. Það fyrsta sem ég sá var ævintýralega fallegt hús með garði, umvafið fallegum trjám, og ég sagði í gríni að þarna væri ég tilbúin að búa. Bræður mínir fóru að hlæja og bentu út um gluggann að þetta væri húsið beint í bakgarðinum þeirra. Þeir búa á hvor á sinni hæðinni í fallegu húsi ásamt fjölskyldum sínum. Simmi bróðir tók upp símann, hringdi í eiganda hússins og við fengum að hoppa yfir garðinn og skoða. Ég kolféll fyrir húsinu og grínaðist við eigendur hússins að þau mættu bara fá mína íbúð í Vesturbænum í staðinn. Viti menn að hún Þóra sem seldi mér húsið var einmitt að leita að íbúð í bænum vegna aðstæðna í sínu lífi og örlögin leiddu þarna saman gott fólk sem þurfti að skipta um stað og vera nær fjölskyldum sínum. Svo við skiptum. Ég seldi henni íbúðina mína og hún seldi mér húsið sitt. Þetta var allt frekar ævintýralegt ferli þar sem var stundum eins og þetta væri allt skrifað í skýin. Þetta er dásamleg saga og ástæðan fyrir því að ég er hér með rósir í garðinum, vínylplötu á fóninum og börn hlaupandi inn og út um dyrnar til þess að leika sér í stóra fallega garðinum okkar í næsta húsi við bræður mína.“

Hvernig verður framtíðin?

„Bara falleg, ljúf, óvænt og ævintýraleg.“

Ef þú ættir eina ósk, hver væri hún?

„Að öll heimsins börn væru elskuð og byggju við frið.“

Hvaða ráð áttu fyrir lesendur?

„Að við munum að staldra við og njóta augnabliksins.“

mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert