Miðvikudaginn 26. september næstkomandi verður Caroline Chéron, eigandi Bonjour! Studio á Óðinsgötu með vinnustofu fyrir foreldra á Kattakaffihúsinu á milli klukkan 15 og 17. Aðgangur að vinnustofunni er ókeypis en þar mun Chéron kenna áhugasömum mæðrum og feðrum að skapa falleg herbergi og rými fyrir börn og hversu mikilvæg áhrif litir hafa á börn.
Chéron sýnir gestum hvernig er hægt að nota veggfóður og málningu til að umbreyta herbergi barnsins þíns í sannkallaðan ævintýraheim og forðast þann svarthvíta eða litlausa heim sem hefur verið ríkjandi í innanhússtíl fyrir börn undanfarin ár.
Ástæðan fyrir opnun Bonjour! hér á landi er sú að Chéron féll fyrir Íslandi þegar hún var á ferðalagi um landið með fjölskyldu sinni. Fyrir ári draumur þeirra að veruleika og þau fluttu til landsins og opnuðu verslunina og innanhúsráðgjafarfyrirtækið Bonjour! Chéron sem er frönsk að uppruna býður Íslendingum upp á nýjar hugmyndir og frönsk áhrif í innanhússtíl.
Nánar um viðburðinn hér.