Segir börnin sín aldrei hafa fengið McDonalds

Neil Patrick Harris og eiginmaður hans, David Burtka.
Neil Patrick Harris og eiginmaður hans, David Burtka. EPA

Leikarinn Neil Patrick Harris segir börnin sín aldrei hafa bragðað á mat frá skyndibitastaðnum McDonalds. Eiginmaður Harris er kokkurinn David Burtka og lítill aðdáandi skyndibita. 

Hann segist sjálfur hafa borðað mikið af skyndibita þegar hann var krakki. Nú býr hann hins vegar við þann lúxus að vera giftur kokki og kaupa þeir mikið inn af óunnum mat.  

Harris og Burtka eiga átta ára gömlu tvíburana Harper og Gideon saman. Þau fá hollan mat í skólanum og þurfa foreldrarnir ekki að pakka nesti fyrir þau. 

View this post on Instagram

Gelato. Jaw dropping. #venice #vacation #grateful

A post shared by Neil Patrick Harris (@nph) on Aug 11, 2019 at 10:17am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert