Leikkonan Jenna Dewan á von á sínu öðru barni en rúmlega eitt og hálft ár er síðan hún og leikarinn Channing Tatum tilkynntu skilnað eftir tæplega níu ára langt hjónaband. Dewan og kærasti hennar, leikarinn Steve Kazee, staðfestu óléttuna við People og birtu stuttu seinna bumbumynd á Instagram.
Dewan sem er 38 ára og Kazee sem er 43 ára hafa ekki verið lengi saman en í október í fyrra sagði heimildarmaður People að parið hefði verið að hittast í um tvo mánuði.
Fyrir á Dewan hina sex ára gömlu Everly með fyrrverandi manni sínum Channing Tatum. Ófædda barnið mun hins vegar vera fyrsta barn Kazee.
View this post on InstagramA post shared by Jenna Dewan (@jennadewan) on Sep 24, 2019 at 4:30pm PDT