Stuðlar að jákvæðri líkamsímynd

Lottie dúkkan er með eðlilega líkamslögun. Hún er hugmyndarík og …
Lottie dúkkan er með eðlilega líkamslögun. Hún er hugmyndarík og hugrökk.

Dúkkan Lottie er að margra mati mótvægi gegn því að ungar stúlkur séu gerðar að kyntákni, þar sem hún er dúkka með eðlilega líkamslögun.

Lottie dúkkan er áræðin, hugrökk og ófeimin að vera hún sjálf.

Með Lottie er snúið til hefðbundnari hugmynda þar sem áherslan er á að börn séu skapandi og nýta sér hugmyndaflug sitt við leik.

Lottie er ekki að herma eftir heimi fullorðinna. Hún er ekki á háum hælum, notar ekki farða er ekki hlaðin skarti og hefur ekki húðflúr.

Hægt er að fá falleg föt á hana úr björtum og líflegum efnum.

Með hverri dúkku fylgir saga sem ætlað er að ýta undir hugmyndaflugið. Lottie fæst í Móðurást og Heimkaupum.

Hægt er að lesa meira um Lottie hér:

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert