Stutt fæðing það besta

Anne Hathaway á von á sínu öðru barni.
Anne Hathaway á von á sínu öðru barni. AFP

Anna Hathaway mætti kasólétt á frumsýningu Amazon Prime-þáttanna Modern Love í síðustu viku. Óhjákvæmilega var Hathaway spurð út í meðgönguna og fjölskyldu sína en hún á von á sínu öðru barni. 

Blaðamaður People spurði Hathaway meðal annars hvað væri það besta sem þriggja ára sonur hennar hefði gert fyrir hana. Það stóð ekki á svörum hjá móðurinni sem sagðist ekki geta hugsað um annað en fæðingu sonar síns.  

„Fæðingin gekk mjög hratt fyrir sig. Það var mjög vingjarnlegt af honum,“ sagði leikkonan sem er greinilega með hugann við væntanlega fæðingu. 

Anne Hathaway.
Anne Hathaway. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert