Amazon tekur boli sem á stendur „Litla hóran hans pabba“ úr sölu

Umræddur bolur var tekinn úr sölu.
Umræddur bolur var tekinn úr sölu. skjáskot/Twitter

Amazon hefur fjarlægt barnaboli úr vefverslun sinn eftir harða gagnrýni, en á bolunum stendur „Daddy's little slut“ eða „Litla hóran hans pabba“.

Bolirnir voru seldir hjá söluaðilanum Onlybabycare, sem selur aðrar vörur fyrir börn á Amazon, meðal annars boli með merki Taco Bell og húfur með orðunum „Black guns matter“.

Umræddir bolir höfðu verið í sölu á Amazon síðan í júní og voru nú á hálfvirði, aðeins 18 bandaríkjadali. Í lýsingu vörunnar stóð að bolurinn væri tilvalinn til þess að leika sér í úti, fara í afmæli, skírn, brúðkaup eða myndatöku.

Bolurinn vakti athygli á Twitter en einn notandi birti skjáskot af honum á Amazon og merkti fyrirtækið í þeirri von að hann yrði tekinn úr sölu. Margir gagnrýndu bolinn á samfélagsmiðlum og nú hefur Amazon hlustað og tekið bolinn úr sölu.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert