Börnin lærðu að búa um 18 mánaða

Angela Bassett á tvíbura.
Angela Bassett á tvíbura. AFP

Black Panther-stjarnan Angela Bassett á tvíbura sem hún kenndi snemma að sinna ákveðnum húsverkum. Segist hún hafa gert það svo að allt yrði auðveldara þegar börnin kæmust á táningsaldur en í dag eru tvíburar hennar 13 ára. 

Leikkonan sem er 61 árs tjáði sig um uppeldið í viðtali við Us Weekly. Kemur þar fram að hún hafi kennt tvíburunum sínum að búa um rúmin sín þegar þau voru aðeins 18 mánaða. 

„Þú verður að kenna þeim snemma, þegar þau eru mjög ung,“ sagði Bassett. „Þegar þau verða 13 ára eru engin vandamál. 18 mánaða lætur þú þau búa um rúmin og þrífa. Rúmfötin eru lítil, þessi litlu teppi,“ sagði Bassett. 

Bassett eignaðist tvíbura með eiginmanni sínum Courtney B. Vance í janúar árið 2006 með hjálp staðgöngumóður. Bassett og Vance hafa verið gift í 22 ár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert