Fannst True of ung fyrir skírn í Armeníu

Mæðgurnar Khloé Kardashian og True Thompson.
Mæðgurnar Khloé Kardashian og True Thompson. skjáskot/Instagram

Raunveruleikaþáttastjarnan Khloé Kardashian segir að sér hafi fundist dóttir sín, True, of ung til að vera skírð. Systur hennar Kim og Kourtney fóru til Armeníu fyrr í haust þar sem börn Kim og Kanyes Wests voru skírð.

„Ég vil þó láta skíra hana, ég veit bara ekki hvenær. Ég vil að tímasetningin sé rétt og að það sé á réttum stað,“ sagði Khloé í viðtali á The Real. True er fyrsta barn Khloé, fædd í apríl 2018. 

Kim lét skíra yngstu þrjú börnin sín, þau Saint þriggja ára, Chicago 21 mánaðar og Psalm fimm mánaða, í Armeníu. Elsta dóttir hennar, North, var skírð í Jerúsalem árið 2015. Fjölskyldan á rætur að rekja til Armeníu, en faðir þeirra var ættaður þaðan. Þær systur hafa gert mikið úr armönskum grunni sínum og reglulega heimsótt landið.

Khloé hefur verið opinská með trúarskoðanir sínar líkt og fjölskylda hennar, sem er kristin. Hún sagðist hafa efast um tilvist Guðs þegar faðir þeirra, Robert Kardashian, lést úr krabbameini árið 2003.

„Ég var mjög sár og reið. Ég var mjög reið við Guð. Ég skildi ekki af hverju einhver eins magnaður og pabbi minn var var tekinn í burtu svona snemma. Pabbi trúði heitt, svo ég gat ekki sæst við það að einhver sem átti í svo nánu sambandi við Guð væri farinn. Ég var ung og þurfti að kenna einhverjum um hvað gerðist. Síðan fór ég að vinna úr lífslokum pabba míns og það breytti einhverju innra með mér,“ skrifaði Khloé á sínum tíma í fréttabréf Lenu Dunham.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert