Harry enginn glaumgosi síðan hann varð faðir

Harry Bretaprins hefur þroskast mikið síðan hann varð faðir.
Harry Bretaprins hefur þroskast mikið síðan hann varð faðir. AFP

Harry Bretaprins er ekki sami glaumgosinn og hann var hér á árum áður eftir að hann varð faðir. Samkvæmt heimildarmanni Us Weekly hefur Harry þroskast mikið eftir að hann eignaðist sitt fyrsta barn, Archie, með eiginkonu sinni. 

„Það fylgir því mikil ábyrgð að eignast barn, og Harry hefur þroskast mikið,“ sagði heimildarmaðurinn og bætti við að hann væri meira í tengslum við tilfinningar sínar. „Hann er góðhjartaður og vill gera hvað sem er til að tryggja öryggi Meghan og Archie.“

Þótt hann njóti þess að fá sér nokkra bjóra stöku sinnum með félögum sínum þá eru partýdagar hans í baksýnisspeglinum að mati heimildarmannsins. 

Nokkur ár eru síðan afglöp prinsins rötuðu á síður blaðanna, síðast árið 2012 þegar nektarmyndum af honum í partýi í Las Vegas var lekið í fjölmiðla. 

Nú er hann ábyrgðarfullur faðir sem sinnir fjölskyldunni sinni af alúð. „Harry og Meghan eru enn að læra að verða foreldrar. Allt er nýtt og þau eru á ókunnum slóðum svo eðlilega eru þau kvíðin og stressuð, sérstaklega ef Archie grætur eða er veikur. Þau vilja hafa allt fullkomið,“ sagði heimildarmaðurinn.

Harry er nú ábyrgðarfullur faðir.
Harry er nú ábyrgðarfullur faðir. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert