Á ég að henda syni mínum út?

Íslensk kona hefur áhyggjur af syni sínum.
Íslensk kona hefur áhyggjur af syni sínum. Ljósmynd/Unsplash

Ragn­hild­ur Birna Hauks­dótt­ir fjöl­skyldu­fræðing­ur svar­ar spurn­ing­um les­enda. Hér fær hún spurn­ingu frá móður sem veit ekki al­veg í hvorn fót­inn hún á að stíga. 

Sæl,

Ég var að lesa svar þitt til móður sem fær kvíðahnút þegar sonur hennar hefur samband, því hann ætlar bara að biðja um pening.

Ég er í sömu aðstæðum, nema ég er með son sem ég er að reyna að hjálpa út úr áfengisvanda. Þegar hann dettur í það er það mjög alvarlegt og stendur yfir í margar vikur. Ég er í varnarstöðu allan tímann og er orðin öryrki eftir sex ára baráttu.

Áfengisvandinn stafar af félagsfælni og kvíða og byrjaði þegar hann missti allt í hruninu, parhús, konu, börn og vinnu. Hann er fjórum sinnum búinn að reyna sjálfsmorð, en það byrjaði þegar hann fór fyrst á þunglyndislyf.

Virk neitaði mér um endurhæfingu og þar af leiðandi versnar heilsa mín stöðugt og ég fæ engan stuðning neins staðar. 

Á ég bara að henda honum út á götu til að mér geti batnað?

Kveðja, móðirin

Ragnhildur Birna Hauksdóttir.
Ragnhildur Birna Hauksdóttir.

 

Sæl kæra móðir og takk fyrir bréfið þitt.

Ef við komum okkur strax að efninu þá virðist sem þú lifir lífi þínu í drifkerfinu (sympatíska taugakerfinu) sem er sá hluti ósjálfráða taugakerfisins sem er virkur undir álagi. Þegar þetta kerfi er nánast stöðugt á, getur það haft mjög slæm áhrif á heilsu okkar og það líf sem við lifum. Heilinn er í raun eins og vöðvi og breytist í samræmi við það sem við æfum. Ég vildi byrja á að koma þessu á framfæri því að þessu sögðu er augljóst að það sem þú ert að gera núna er skaðlegt fyrir þig og þína heilsu og jafnframt hefur það ekki verið gagnlegt fyrir son þinn. Hugsanir þínar og líðan í dag og síðastliðin ár vinna gegn þér.

Þegar hjálpin er ekki að hjálpa

Móðurhjartað er fullt af kærleika til barna sinna,  sama hversu gömul þau verða. Móðir mín er komin yfir nírætt og les enn yfir systur minni á sjötugsaldri að klæða sig betur í kuldanum, muna að hvíla sig og svo framvegis. Eins og þú segir í bréfi þínu þá er fullorðinn sonur þinn að kljást við fíkn – alkóhólisma. Þú vilt honum allt það besta en forsendur sambands ykkar eru litaðar af fíkninni. Þú tekur mögulega á þig þá ábyrgð að halda honum á réttri braut, á þinn kostnað og mögulega hans því á sama tíma nær hann ekki að tengjast algerlega sínum eigin vanmætti og sínum eigin styrk, sem hvort tveggja er nauðsynlegt til að ná bata. Það sem þú ert að gera fyrir son þinn er svo eðlilegt því það er ekkert eins sárt og að sjá þann sem við elskum þjást. Hins vegar sé ég þig svolítið fyrir mér eins og eins manns björgunarsveit, með það eitt að markmiði að vera í viðbragðsstöðu ef eitthvað gerist, svona eins og gert er þegar alvarleg hætta er á ferð í samfélaginu okkar. Björgunarsveitin verður með tímanum þreytt og þá er að sjálfsögðu skipt um fólk í brúnni. Ég held að þú vitir það innst í hjarta þínu að hjálpin þín er ekki alltaf að hjálpa. Sektarkenndin getur byrgt þér sýn en til þess að eyða sektarkenndinni og sefa stöðugt virkt drifkerfi þarftu að einbeita þér að þér og þinni velferð, þá koma réttu svörin til þin.

Hvar á ég að byrja?

  • Byrjaðu á að viðurkenna fyrir þér og einhverjum öðrum að þú hefur ekkert vald yfir áfengisneyslu hans eða líðan. Það er oft fyrsta skrefið að viðurkenna þann vanmátt sem þú hefur barist á móti dag hvern. Hingað til hefurðu sagt þér að þú hafir þann mátt að geta stjórnað neyslunni. Þú getur það ekki, það er ekki í þínu valdi. Þessi tálsýn hefur rænt þig heilsunni, hugarró, andlegri næringu og mögulega hindrað andlegan þroska þinn og sonar þíns.
  • Það eru ókeypis samtök sem hægt er að leyta til eins og CODA og AL ANON. Stundum er það góð byrjun að fara á fund. Kannski geturðu fengið einhvern með þér ef skrefið er erfitt.
  • Mikilvægt er að minnka áhrif drifkerfisins og virkja betur sefkerfið (parasympatíska kerfið). Drifkerfið er, eins og áður sagði, kerfi sem er virkt undir álagi og er tengt frumstæðasta hluta heilans.  Viðbrögð okkar eru að mestu ósjálfráð þegar kerfið er á, við tökum ekki yfirvegaðar ákvarðanir – kerfið býður einfaldlega ekki upp á það. Líklegt er að ákvarðanir sem teknar eru séu byggðar á ótta. Þú lýsir því að þetta kerfi hafi að mestu verið virkt síðustu ár hjá þér.
  • Sefkerfið er okkur nauðsynlegt til að finna frið, tengjast æðri vitsmunum okkar, taka meðvitaðar ákvarðanir og verða vitni að hugsunum okkar og tilfinningum. Til að taka ákvarðanir sem eru byggðar á vissu um að þær séu réttar, fyrir þig og son þinn, er mikilvægt að virkja sefkerfið. Það er hægt að gera með öndunaræfingum, hugleiðslu, gönguferðum og með ýmsum öðrum leiðum.
  • Ein lítil æfing til að virkja sefkerfið: Ímyndum okkur að drifkerfið sé rautt á litinn. Sefkerfið er hins vegar grænt og til að koma okkur á græna svæðið getum við til að mynda gefið okkur nokkrar mínútur á dag þar sem við búum okkur til öruggan og góðan stað í huganum. Upplifum frið og vellíðan og einbeitum okkur að því að hægja örlítið á önduninni. Reynum að festa þennan stað í minni og smátt og smátt verður auðveldara að fara yfir á græna svæðið. 
  • Ræddu málin við einhvern. Þegar hugur okkar er að mestu uppfullur af ótta getur verið afar dýrmætt að fá lánaða dómgreind. Þá er gott  að ræða við fólk sem maður treystir. Ekki loka þig af í óttanum.
  • Þau atriði sem nefnd eru hér á undan eru góður grunnur þess að læra að setja heilbrigð mörk. Þetta er alltaf spurning um hvaðan viðbrögð okkar koma í stað hver viðbrögð okkar eru. Í raun má segja að til að setja heilbrigð mörk þarf að vera til staðar heilbrigt sjálfsvirði, en það er eitt af því sem tapast oft í þeirri vonlausu baráttu að hafa vald yfir líðan og fíkn annarra.

Ég vona að þessir punktar hjálpi þér af stað í þinni vegferð kæra móðir. Ef þú vilt fá leiðbeiningar um öndunaræfingar, hugleiðslu eða annað því tengt geturðu fundið mikið á netinu auk þess sem þú getur skrifað mér á vitund12@gmail.com og ég get gefið þér nánari leiðbeiningar þar að lútandi.

Samtök sem hægt er að leita til, ykkur að kostnaðarlausu: ALANON, AA, CODA, Hugarafl, Lotushús og Pieta-samtökin svo einhver séu nefnd.


Gangi þér vel og kærleikskveðja,

Ragnhildur Birna Hauksdóttir fjölskyldufræðingur. 

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Ragnhildi Birnu spurningu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert