Grátköst í búðinni úr sögunni með einföldu ráði

Kristina tekur myndir af dóttur sinni með dótinu og segist …
Kristina tekur myndir af dóttur sinni með dótinu og segist ætla senda jólasveininum myndina svo hann viti að hana langi í þetta dót. Skjáskot/Facebook

Kona í Bandaríkjunum deildi frábæru foreldraráði nú á dögunum sem hefur gert líf hennar töluvert einfaldara á síðustu mánuðum. Ráðið er einfalt og kostar ekki neitt og kemur í veg fyrir að dóttir hennar taki grátkast í búðinni. 

Margar búðarferðir hjá mæðgunum Kristinu Watts og Emmie höfðu endað með gráti og gnístran tanna eftir að Emmie hafði séð eitthvert dót sem hana langað í en móðir hennar sagt nei. 

Kristina var orðin þreytt á búðarferðunum sem versnuðu og versnuðu bara eftir því sem jólin nálgast og búðirnar fyllast af dóti. Hún brá á það ráð að taka mynd af dóttur sinni með öllu dótinu sem hana langaði í og sagði henni að hún myndi senda jólasveininum myndina. 

Þetta ráð skotvirkaði og eins og hendi væri veifað voru grátköstin úr sögunni. 

Emmie litla gleymir svo dótinu jafn fljótt og hún finnur …
Emmie litla gleymir svo dótinu jafn fljótt og hún finnur það. Skjáskot/Facebook
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert