Finnst fimm börn nóg

Mohamed Hadid á nóg af börnum að eigin mati.
Mohamed Hadid á nóg af börnum að eigin mati. Skjáskot/Instagram

Mohamed Hadid, faðir fyrirsætanna Gigi og Bellu Hadid, hætti með ungri kærustu sinni, Shiva Safai, vegna ágreinings um börn. Safai vildi fara að eignast börn með honum en hann sagði fimm börn vera nóg. 

Hinn 71 árs gamli Hadid á 5 börn, Gigi, Bellu, Anwar, Alönu og Marielle. Safai, sem er 39 ára vildi eignast börn og þar af leiðandi hættu þau saman. 

Sögusagnir eru reyndar á kreiki um að þau hafi hætt saman fyrir um ári, en það hefur ekki fengist staðfest. Hadid og Safai trúlofuðu sig árið 2014 en létu aldrei verða af því að ganga í það heilaga. 

View this post on Instagram

These faces... only their mothers and fathers can love. Love you @bellahadid your father.

A post shared by Mohamedhadid. (@mohamedhadid) on Nov 2, 2019 at 2:15pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert