Auðunn Blöndal skírði soninn í dag

Auðunn Blöndal eða Auddi eins og hann er kallaður.
Auðunn Blöndal eða Auddi eins og hann er kallaður.

Sjónvarpsstjarnan Auðunn Blöndal eða Auddi eins og hann er kallaður er búinn að láta skíra frumburð sinn. Fór skírnin fram í heimahúsi að viðstöddum nánustu ættingjum og vinum.

Auðunn og unnusta hans, Rakel Þormarsdóttir, eignuðust drenginn í nóvember og hefur hann stækkað og dafnað síðan hann kom í heiminn. 

Í dag var stór stund í fjölskyldunni þegar Theódór Sverrir Blöndal var skírður. Ekki er vitað hvort Sverris nafnið er höfuðið á Sverri Þór Sverrissyni, eða Sveppa eins og hann er kallaður. En þeir tveir, Auddi og Sveppi, eru ódauðlegur dúett sem hefur fengið mestu fýlupúka landsins til að springa úr hlátri. Það er heldur ekki ljóst hvort drengurinn sé skírður í höfuðið á Sverri Bergmann en hann og Auddi hafa verið miklir vinir um langt skeið. Eitt er þó víst að þessir tveir Sverrir-ar voru mættir þegar Theódór Sverrir fékk nafnið sitt og brostu þeir hringinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert