Hélt að barnið væri í þvottavélinni

Andlit barnsins blasti við í þvottavélarglugganum.
Andlit barnsins blasti við í þvottavélarglugganum. skjáskot

Faðir nokkur segist næstum því hafa fengið hjartaáfall þegar hann sá andlit barn síns hringsnúast í þvottavélinni. Hann áttaði sig stuttu seinna á því að konan hans hafi ekki sett nokkurra mánaða gamalt barn þeirra í þvottavélina, heldur var þetta bolur með mynd af barninu. 

Faðirinn deildi mynd af „barninu“ í þvottavélinni á spjallþráð á netinu og skrifaði „Plís, ef þið eruð að þvo uppáhald bolinn ykkar með mynd af barninu, setjið viðvörunarskilti á þvottavélina eða eitthvað.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert