Hafði rangt fyrir sér um barneignir

Hugh Grant og Anna Eberstein.
Hugh Grant og Anna Eberstein. AFP

Leikarinn Hugh Grant segir að hann hafi haft rangt fyrir sér um barneignir og hjónabönd. Grant og Anna Eberstein gengu í það heilaga í maí fyrir ári. Þau eiga saman þrjú börn. 

Grant hafði áður verið mótfallinn hjónaböndum og barneignum en árið 2015 sagði hann í viðtali að hann tryði ekki á hjónabönd. „Ég hef séð nokkur góð dæmi á ævinni, kannski fimm, en annars held ég að þetta sé örygg uppskrift að ömurð fyrir báða einstaklingana,“ sagði leikarinn þá. 

Nú segir hann að hann hafi haft rangt fyrir sér. „Ég hafði einfaldlega rangt fyrir mér. Ég hafði rangt fyrir mér. Og hvað varðar barneignir, ég ranghvolfdi augunum. Fólk sagði við mig „'o Hugh þú skilur þetta ekki“, en þau höfðu rétt fyrir sér.

„Það var mjög gott að kvænast. Það var eitt af því sem ég hafði frestað í allt of marga áratugi. Mjög gott. Mjög gott að vera kvæntur,“ bætti Grant við. Hann á fimm börn í heildina, tvö sem hann átti með fyrrverandi kærustu sinni Tinglan Hong og svo þrjú með eiginkonu sinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert