Stjörnurithöfundur á von á öðru barni

Óttar M. Norðfjörð rithöfundur á von á öðru barni.
Óttar M. Norðfjörð rithöfundur á von á öðru barni. Ljósmynd/Aðsend

Óttar M. Norðfjörð og Elo Vázquez eiga von á öðru barni í vor. Hann segir að þetta sé í raun ótrúlegt og segir að þakklæti sé honum efst í huga. Fyrir eiga hjónin einn son. 

„Þetta líf, þetta líf. Fyrir rúmlega tveimur árum var ég ekkert endilega viss um að ég yrði nokkurn tíma pabbi, en núna eigum við hjónin von á okkar öðrum syni í vor. Þakklæti er mér efst í huga, og mikil tilhlökkun,“ segir Óttar á Facebook-síðu sinni. 

Barnavefurinn óskar þeim hjartanlega til hamingju með fjölgunina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert