Kennir DNA-prófi um feluleikinn

Drake á einn son.
Drake á einn son. AFP

Tónlistarmaðurinn Drake eignaðist soninn Adonis fyrir tveimur árum. Hann var ekki í sambandi við barnsmóður sína og staðfesti ekki tilvist barnsins fyrr en rúmu hálfu ári eftir fæðinguna. Áður en Drake staðfesti að hann ætti son rappaði óvinur hans, Pusha T, um soninn í laginu The Story of Adidon. Í rapplaginu hélt Pusha T því fram að Drake væri að fela soninn. 

Í nýju viðtali segist Drake ekki hafa staðfest faðernið fyrr þar sem niðurstöður DNA-prófs eyðilögðust og því ekki hægt að staðfesta að barnið væri hans. „Ég var í mjög skrítinni biðstöðu þar sem ég vildi ekki segja heiminum að hann væri sonur minn ef hann væri það ekki,“ sagði Drake. 

Drake var einnig spurður út í það hvort hann hefði ætlað sér að greina frá tilvist sonar síns í tengslum við nýja línu í samstarfi við íþróttamerkið Adidas. Sagði hann ekki svo vera. Hann hefði vissulega unnið með Adidas en hann hefði ekki ætlað að græða á barninu eins og Pusha T hélt fram í rapplaginu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert