Raunveruleikastjarnan Teddi Mellenkamp hefur óskað eftir hjálp fylgjenda sinna á Instagram við að velja nafn á barnið sitt.
Mellenkamp á von á sínu þriðja barni á komandi ári. Von er á stelpu og hafa hún og eiginmaður hennar Edwin Arroyave augastað á fjórum nöfnum. Nöfnin Presley, Shay, Selena og Dove koma til greina og biður hún nú fylgjendur sína að gefa álit sitt á þeim.
Fyrir eiga þau Mellenkamp og Arroyave tvö börn, Slate 7 ára og Cruz 5 ára. Arroyabe á eina dóttur úr fyrra sambandi, hina 11 ára gömlu Isabellu.
View this post on InstagramSound off with your fave and why?!! We are a house divided. 💕👶
A post shared by Teddi Mellencamp Arroyave (@teddimellencamp) on Dec 28, 2019 at 7:34am PST