Mæðgnamynd Kidman setti Instagram á hliðina

Nicole Kidman birti mynd af sér og dóttur sinni í …
Nicole Kidman birti mynd af sér og dóttur sinni í tilefni afmæli dóttur hennar. skjáskot/Instagram

Leikkonan Nicole Kidman fagnaði því á dögunum að yngsta dóttir hennar, Faith, er orðin níu ára. Dóttir Kidman og tónlistarmannsins Keiths Urbans kom í heiminn með hjálp staðgöngumóður árið 2010. 

Kidman, sem passar að halda börnum sínum utan sviðsljóssins, birti mynd í tilefni afmælisins á Instagram. Til þess að halda andliti dóttur sinnar leyndu birti hún gamla mynd af sér með dótturina í fanginu. 

„Litla stelpan okkar er nú orðin níu ára! Við elskum þig svo mikið, dýrmæta, dýrmæta stelpan okkar,“ skrifaði Kidman meðal annars þegar hún birti myndina. 

Aðdáendur Kidman sem og stjörnuvinir hafa tekið afar vel í myndina.

„Gullfalleg,“ skrifar ofurfyrirsætan Naomi Campbell við myndina. „Þvílík mynd,“ skrifaði einnig leikkonan Gwyneth Paltrow við myndina. „Undurfögur! Til hamingju með afmælið Faith,“ skrifar leikkonan Reese Witherspoon. 

View this post on Instagram

Our baby girl is now 9! We love you so much precious precious girl. Happy birthday Faith! xx ❤️🎂

A post shared by Nicole Kidman (@nicolekidman) on Dec 28, 2019 at 6:00pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert