Sveinn Andri verður afi á nýju ári

Sveinn Andri fær nýtt hlutverk á nýju ári.
Sveinn Andri fær nýtt hlutverk á nýju ári. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson tilkynnti nú í kvöld að hann verður afi á nýju ári. Sara Messíana, dóttir Sveins á von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum Bjarna Geir Gunnarssyni.

„Um leið og ég þakka fjölskyldu og vinum til sjávar og sveita fyrir öll liðnu árin þá vil ég óska þeim gleðilegs og gæfuríks árs 2020. Sjálfur er ég í upphafi nýs árs algerlega að missa mig yfir nýju hlutverki sem mér mun hlotnast þar sem hún Sara dóttir mín ætlar að gera mig að afa í júlí. Það sem ég hlakka til,“ skrifar Sveinn Andri í færslu sinni á Facebook. 

Barnavefur mbl.is óskar Sveini, Söru og Bjarna til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert