Hin tæplega 8 ára gamla Blue Ivy Carter, dóttir Beyoncé Knowles og Jay-Z, verður líkari og líkari móður sinni með árunum.
Blue litla eyddi áramótunum með foreldrum sínum í gamlárspartý. Tónlistarkonan Megan Thee Stallion birti mynd af sér með Blue litlu og Beyoncé í partýinu. Stúlkan litla þykir nauðalík móður sinni á myndunum.
Lengi fannst aðdáendum hjónanna Beyoncé og Jay-Z frumburður þeirra ansi líkur pabba sínum. Í gegnum árin hefur sú stutta farið að líkjast móður sinni enn meira og nú eru þær eiginlega nauðalíkar.
View this post on InstagramA post shared by Hot Girl Meg (@theestallion) on Jan 1, 2020 at 9:59am PST