Pink og Carey Hart ætla ekki að eignast fleiri börn

Pink og Carey Hart.
Pink og Carey Hart. AFP

Tónlistarkonan Pink sagði í viðtali að hún og eiginmaður hennar Carey Hart muni ekki koma til með að eignast fleiri börn. Hjónin eiga dótturina Willow og soninn Jameson. 

„Mér skilst að hann sé hættur,“ sagði Pink þegar hún var spurð hvort þau hygðu á frekari barneignir.

„Nema ég skipti honum út fyrir yngri árgerð,“ bætti hún svo við í gríni. Pink hefur áður tjáð sig um að þau væri hætt að eignast börn. 

Í apríl á þessu ári birti hún mynd af sér á nýju mótorhjóli og skrifaði „Ástin mín vill ekki gefa mér fleiri börn svo hann byggði eitt handa mér.“

Pink og Hart gengu í það heilaga árið 2006 og hafa átt í fullu fangi með Willow og Jameson sem eru 8 og 3 ára. Í viðtali fyrr á árinu sagði Pink að dóttur hennar finnst foreldrar sínir alls ekki vera svöl. Börnin hafa ferðast með foreldrum sínum á tónleikaferðalögum Pink um heiminn. 

„Hún elskar að vera á ferðalagi, hún elskar þetta líf og sirkusinn sem líf okkar er og hún er þakklát, en hún er eiginlega ekkert hrifin af tónlistinni minni,“ sagði Pink í viðtali við UsWeekly.

Pink og Hart ásamt börnum sínum Willow og Jameson.
Pink og Hart ásamt börnum sínum Willow og Jameson. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert