Dóttir Diaz fékk undarlegt millinafn

Cameron Diaz.
Cameron Diaz. AFP

Leikkonan Cameron Diaz og rokkarinn Benji Madden urðu foreldrar rétt fyrir áramót þegar dóttir þeirra kom í heiminn eftir langa bið. Heimildarmaður People segir hjónin vera springa úr hamingju. 

Dóttir þeirra fékk nafnið Raddix Chloe Wildflower en seinna millinafnið mætti þýða sem Villiblóm. 

„Þau biðu svo lengi eftir því að eignast barn svo nú eru þau bara njóta dóttur sinnar,“ sagði heimildarmaðurinn. „Þau eru enn alsæl vegna barnsins og hamingjusömustu foreldrarnir. Þau skiptast á að vera með barninu og fara eiginlega ekki út úr húsi saman.“

Heimildarmaðurinn segir hjónin verja tíma með fjölskyldu og nánum vinum en fara ekki út með dóttur sína. Eru þau sögð vernda dóttur sína sérstaklega mikið þar sem núna er flensutímabil. 

„Cameron ímyndaði sér alltaf hvernig móðurhlutverkið yrði. Þú sérð að það er svo miklu meira en hún ímyndaði sér. Hún hefur aldrei verið hamingjusamari.“

Benji Madden og Cameron Diaz eru foreldrar.
Benji Madden og Cameron Diaz eru foreldrar. Samsett mynd /AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert