Brjáluð við Jenner að hafa farið með Dream í þyrlu

Blac Chyna er ekki par sátt við Jenner.
Blac Chyna er ekki par sátt við Jenner. AFP

Fyrirsætan Blacc Chyna er síður en svo sátt með fyrrverandi mágkonu sína Kylie Jenner um þessar mundir. Jenner bauð þriggja ára dóttur Chyna, sem hún á með bróður Jenner Rob Kardashian, í þyrluflug á afmælisdaginn hennar í fyrra. 

Jenner leigði sömu þyrlu og körfuboltamaðurinn Kobe Bryant sem lést í slysi með þyrlunni á sunnudag í Calabasas í Bandaríkjunum. 

Samkvæmt heimildum People fékk Jenner ekki leyfi frá Chyna til þess að fara með Dream um borð í þyrlu. Lögmaður Chyna sagði í tilkynningu í gær Chyna hefði aldrei gefið leyfi sitt fyrir flugferðinni.

„Ekkert foreldri á að þurfa að komast að því eftir á að barnið þess hafi tekið þátt í hættulegum gjörningi án leyfis þess,“ sagði lögmaðurinn.

Jenner greindi frá því á Instagram-síðu sinni í gær að hún hafi reglulega leigt umrædda þyrlu og þekkti flugmanninn vel. Í nóvember birti hún líka myndir af Dream um borð í þyrlunni og fyrir utan þyrluna.

Chyna og Kardashian hafa átt í háværum deilum um forræðið yfir Dream og skjóta reglulega föstum skotum að hvort öðru í fjölmiðlum. Bæði hafa þau gagnrýnt hæfni hvort annars til þess að annast dótturina, en þau deila nú jöfnu forræði yfir henni.

Kylie Jenner fór með litlu frænku sína í þyrluflug.
Kylie Jenner fór með litlu frænku sína í þyrluflug. AFP
Jenner setti inn mynd af Dream litlu þegar hún fór …
Jenner setti inn mynd af Dream litlu þegar hún fór með hana í þyrluflugið. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert