Talar opinskátt um tilfinningar við synina

June Diane Raphael.
June Diane Raphael. skjáskot/Instagram

Grace and Frankie-stjarnan June Diane Raphael segist ræða opinskátt um tilfinningar við syni sína tvo, Gus og Sam. 

Í viðtali við UsWeekly sagði Raphael að hún ræddi líka um að kyn væri fljótandi. „Ég segi alltaf að ég eigi tvo stráka þangað til þeir segja mér eitthvað annað. Ég er ekki föst í kyni þeirra,“ sagði Raphael. 

„Við tölum mikið um tilfinningar og vanmátt og hvað það þýðir að vera góður og hugsa um aðra,“ sagði Raphael og bendir á að í nútímasamfélagi sé konum kennt að vera sterkar en strákum ekki kennt að segja frá tilfinningum sínum.

Hún hefur áður sagt í viðtölum að sér hafi brugðið þegar hún vissi að hún ætti von á drengjum. „Ég á tvær systur, ég hef alltaf átt vinkonur, þannig að þegar ég vissi að ég myndi eignast tvo stráka varð ég svo hissa og leið eins og ég myndi ekki kunna að hugsa um þá og vera mamma stráka,“ sagði Raphael í viðtali árið 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert