Ekkert hrifin af litlu systur sinni

Blake Lively og Ryan Reynolds eiga nú þrjár dætur.
Blake Lively og Ryan Reynolds eiga nú þrjár dætur. AFP

Leikkonan Blake Lively segir að þriggja ára dóttir hennar Inez sé eiginlega ekkert hrifin af nýjustu systur sinni. Lively og eiginmaður hennar Ryan Reynolds eignuðust sína þriðju dóttur á síðasta ári. 

Elsta stelpan hennar, James, er fimm ára og er mjög hrifin af yngstu systur sinni að sögn Lively. „Í byrjun var elsta dóttir okkar mjög hrifin af henni og mjög móðurleg en miðjustelpan vildi halda sig í fjarlægð frá henni. Ég reyndi að útskýra fyrir henni að hún gæti kennt henni allt sem hana langaði til,“ sagði Lively og bætti við að þá hefði hún farið að sýna henni meiri áhuga. 

Lively sagði Fallon líka að James litla væri líka mjög upptekin af honum. „Við þurfum að halda okkur í burtu frá þér, Jimmy. Hún er svo hrifin af þér. Hún og Taylor Swift eru félagar, ekkert vandamál. En Jimmy Fallon — og hún getur ekki talað. Þú ert Beyoncé fyrir henni,“ sagði Lively og bætti við að hún hefði verið of stressuð til þess að koma í þáttinn með mömmu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert