Vanessa Bryant, ekkja körfuboltamannsins Kobe Bryant, segir það vera eins og líkami hennar neiti að meðtaka að dóttir hennar Gigi sé dáin.
Vanessa missti bæði eiginmann sinn Kobe og dóttur sína Gigi í hörmulegu þyrluslysi 26. janúar. Í færslu sinni á Instagram skrifar hún: „Ég get ekki meðtekið hvort tveggja. Það er eins og ég sé að reyna að vinna úr fráfalli Kobe en líkami minn neitar að Gigi muni aldrei aftur koma til mín.“
„Af hverju ætti ég að geta vaknað einn dag í viðbót á meðan dóttir mín hefur ekki það tækifæri? Ég er svo reið. Hún átti eftir að lifa svo löngu lífi,“ skrifar Vanessa. Hún segist átta sig á því að hún þurfi að vera til staðar fyrir hinar þrjár dætur sínar.
Minningarathöfn verður haldin fyrir feðginin 24. febrúar í Staples Center í Los Angeles.
View this post on InstagramA post shared by Vanessa Bryant 🦋 (@vanessabryant) on Feb 10, 2020 at 11:14am PST