Litríkt leikherbergi Kardashian-West-fjölskyldunnar

Kim, Kanye og börn þeirra fjögur.
Kim, Kanye og börn þeirra fjögur. Skjáskot/Instagram

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian West og tónlistarmaðurinn Kanye West eru þekkt fyrir stílhreint og naumhyggjulegt heimili sitt. Það eru þó ekki öll herbergi jafn hvít og látlaus í húsinu en Kardashian sýndi inn í leikherbergi barnanna á dögunum.

Hjónin eiga fjögur börn, North, Saint, Chicago og Psalm, og leika þau öll saman í herberginu. Þegar komið er inn í herbergið er lítið svið og á því eru hin ýmsu hljóðfæri, þar að auki er fjöldi míkrófóna fyrir karíókí. 

Fyrir ofan sviðið er skjávarpi svo börnin geti haft teiknimyndir í gangi á meðan þau eru í herberginu. Hvert barn virðist eiga sitt horn í herberginu þar sem eru leikföng sem henta þeirra aldri. 

Þar er líka lærdómshorn með borði þar sem þau vinna heimavinnuna sína. Inn af leikherberginu er svo skápur sem hægt er að ganga inn í. Þar eru allir litir, stimplar, blöð og dót til að föndra. Hrekkjavökubúningar barnanna eru líka geymdir þar og virðist safnið vera ansi stórt.

Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert