Hafa miklar áhyggjur af syninum

Rande Gerber og Cindy Crawford hafa miklar áhyggjur af syninum.
Rande Gerber og Cindy Crawford hafa miklar áhyggjur af syninum. AFP

Fyrirsætan Cindy Crawford og eiginmaður hennar Rande Gerber eru sögð vera viti sínu fjær af áhyggjum yfir syni sínum, hinum tvítuga Presley.

Presley lét nýlega húðflúra orðið misskilinn á andlit sitt og hefur það valdið miklum áhyggjum hjá foreldrum hans. „Hann hefur verið sendur í eins konar meðferð áður. Presley hefur verið að eyða tíma með hópi fólks sem hefur haft neikvæð áhrif á hann,“ sagði heimildarmaður UsWeekly. Presley var tekinn fyrir ölvunarakstur í Los Angeles í Bandaríkjunum í janúar 2019.

Stuttu eftir að hann sýndi húðflúrið á Instagram sagði hann að honum þætti hann mjög misskilinn og húðflúrið táknaði þá tilfinningu. Hann hefur hlotið nokkra gagnrýni sem hann hefur svarað. „Ef ég héldi að þetta myndi eyðileggja and­lit mitt, eða ef ég vildi þetta ekki, hefði ég ekki fengið mér það. Ég held það sé frek­ar aug­ljóst. Það stend­ur mis­skil­inn því þannig hef­ur mér liðið alla mína ævi,“ sagði hann í myndbandi á Twitter.

Húðflúr Presley.
Húðflúr Presley. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert