Tvíburarnir Nikki og Brie Bella neita sögusögnum um að þær hafi farið í tæknifrjóvgun til að vera óléttar saman. Nikki og Brie eru báðar óléttar þessa dagana og eiga að eiga börn sín með aðeins 2 vikna millibili.
Í hlaðvarpsþætti þeirra systra neituðu þær öllum sögusögnum um tæknifrjóvgun. „Þetta er svo fáránlegt, hvorug okkar Brie fór í tæknifrjóvgun,“ sagði Nikki.
„Við skipulögðum ekki að vera léttar á sama tíma. Ég er í sjokki á sama tíma og ég er rosalega glöð,“ bætti Nikki við.