Jenner eignaðist tvíbura

Brandon Jenner eignaðist tvíbura á dögunum.
Brandon Jenner eignaðist tvíbura á dögunum. Skjáskot/Instagram

Brandon Jenner og eiginkona hans Cayley Stroker eignuðust tvíbura nú á dögunum. Brandon er sonur Caitlyn Jenner og Lindu Thompson. 

Thompson deildi mynd af syni sínum með tvíburasynina, Bo og Sam, á Instagram í gær. Þetta eru fyrstu börn Jenner og Stroker saman en fyrir á hann 4 ára dótturina Evu James sem hann átti úr fyrra hjónabandi með Leuh James. 

Jenner og Stroker giftu sig fyrir rúmlega mánuði, 21. janúar, þegar Stroker var gengin tæpa átta mánuði á leið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert