Besta vinkona Meghan hertogaynju, stílistinn Jessica Mulroney, greindi frá því á Instagram að eftir sjö ár hefði komið í ljós að tvíburar hennar væru eineggja en ekki tvíeggja eins og henni hafði áður verið sagt.
Tvíburabræðurnir eru mjög líkir og átti Mulroney erfitt með að þekkja þá í sundur þegar þeir voru yngri. Tók það á og segir hún að sér hafi liðið hræðilega.
„Í sjö ár var okkur sagt að þeir væru tvíeggja og okkur leið eins og hræðilegum foreldrum þegar við þekktum þá ekki í sundur fyrstu tvö árin,“ skrifaði Mulroney og sagði sannleikann kominn í ljós.
Drengirnir Brian og John tóku virkan þátt í brúðkaupi Meghan og Harry árið 2018 ásamt yngri systur sinni Ivy.
View this post on InstagramA post shared by Jess Mulroney (@jessicamulroney) on Feb 20, 2020 at 5:17am PST