Biden á von á barni með nýju konunni

Hunter Biden, til vinstri, ásamt föður sínum Joe Biden og …
Hunter Biden, til vinstri, ásamt föður sínum Joe Biden og bróður sínum Beau Biden sem lést árið 2015. AFP

Hunter Biden, sonur Joe Biden, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, og eiginkona hans Melissa Cohen eiga von á sínu fyrsta barni. 

Hunter á fjögur börn fyrir en hann eignaðist þrjú börn með Kathleen Biden, eiginkonu sinni til 22 ára. Hann eignaðist einnig eitt barn utan hjónabands árið 2018 en lengi var á huldu hvort hann væri raunverulegur faðir barnsins.

Hunter og Kathleen skildu árið 2017. Áður en Hunter kynntist núverandi eiginkonu sinni tók hann saman við ekkju bróður síns Hallie Biden, en hún var gift bróður hans Beau Biden þegar hann féll skyndilega frá árið 2015.

Hunter og Cohen fundu ástina árið 2019 og giftu sig í maí sama ár. Hunter er 12 árum eldri en eiginkona hans, en Cohen er 38 ára. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert