Erfiðast að vera í kringum fullt fólk

Chloë Sevigny á von á sínu fyrsta barni.
Chloë Sevigny á von á sínu fyrsta barni. ANGELA WEISS

Leikkonan Chloë Svigny segir að það erfiðasta við að ganga með barn sé að vera á viðburðum í kringum drukkið fólk. 

Sevigny á von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum Sinisa Mackovic. „Mér líður vel. Þetta hefur gengið vel. Mér finnst gaman að grínast með það að það erfiðasta sé að vera í kringum vini mína þegar þeir eru drukknir. Vanalega finnst mér best að vera smá drukkin þegar ég fer út á lífið, það hefur verið stærsta áskorunin. Allt hitt hefur gengið mjög vel,“ sagði Sevigny í viðtali við People

Hún segist vera að reyna að njóta augnabliksins á meðan hún er ólétt. „Ég veit að allir segja að ég eigi eftir að sakna þess að vera ólétt svo ég er að reyna að njóta þess. Ég nýt allrar athyglinnar sem kærastinn minn hefur sýnt mér, allt nuddið og fótanuddið og allt það.“

Sevigny glímir nú við algengt vandamál óléttra kvenna, hún passar í fáa skó sem hún á. „Ég á í smá skóvandræðum. Fætur mínir eru svo bjúgaðir að ég passa ekki í neina skó. Ég keypti mér sæta Miu Miu-skó en þeir eru svo þungir. Og síðan var ég komin í þessa Birkenstock-skó og ég hugsaði með mér að ég væri virkilega komin þangað. Þannig að ég ætla að fara að skoða Clarks-skó á morgun,“ sagði Sevigny. 

Chloë Sevigny.
Chloë Sevigny. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert