Söngkonan Ciara er þekkt fyrir að vera algjör töffari. Hún er gift NFL-stjörnunni Russell Wilson og virðast þau mjög náin ef marka má nýjustu heimildir.
Ciara og Wilson eru æfingafélagar og æfa meðal annars box saman. Í janúar á þessu ári tilkynnti söngkonan að hún ætti von á sínu þriðja barni. Fyrir eiga þau Ciara og Wilson tveggja ára dóttur að nafni Sienna Wilson. Hún á einnig fimm ára son fyrir með rapparanum Future, hann ber nafn föður síns og heitir Future Zahir Wilburn.
Wilson er stoltur af eiginkonu sinni sem virðist vera viðskiptafélagi hans einnig. En fréttir herma að þau hafi gengið frá hlut í Seattle Sounders, ásamt tíu öðrum fjölskyldum á síðasta ári.
View this post on InstagramA post shared by Russell Wilson (@dangerusswilson) on Mar 4, 2020 at 9:48am PST