Grey's Anatomy-stjarna á von á sér

Camilla Luddington fer með hlutverk Jo í Grey's Anatomy.
Camilla Luddington fer með hlutverk Jo í Grey's Anatomy. AFP

Grey's Anatomy-leikkonan Camilla Luddington á von á sínu öðru barni með eiginmanni sínum, leikaranum Matthew Alan. Leikkonan greindi frá óléttunni á Instagram í byrjun vikunnar. Enska leikkonan sem fer með hlutverk Jo Wilson í læknadramanu langlífa segist vera himinlifandi með að stækka fjölskylduna og gefa tveggja ára dóttur sinni systkini.

Luddington segist jafnframt hafa verið lítið á samskiptamiðlum vegna þess hversu þreytt hún hefur verið og óglatt allan daginn. Segist hún meðal annars hafa ælt í tökum. Þrátt fyrir þreytuna og ógleðina segist hún þakklát fyrir að fá að ganga með annað barn. 

Luddington eignaðist dótturina Hayden í mars 2017 með kærasta sínum Matthew Alan. Þau trúlofuðu sig árið 2018 og giftu sig í ágúst 2019. Hjónabandið fer greinilega vel af stað miðað við nýjustu fréttir. 

View this post on Instagram

Me: “I’m just gonna do a super casual pregnancy announcement.” Also me: “I NEED PRINCESSES!!!!!!” 👑✨💫🌟👑✨🌟💫👑✨🌟💫👑 Okay so... Matt and I are so happy to fiiiiinally post after months of “hiding” that i am pregnant! We are beyond excited to add to our little family and give Hayden a sibling. And yes, I’ve been away a lot from social media the past few months because OMGGGG the exhaustion and OMGGGGGG the morning (read: alllllll day) sickness. Have I been 🤮 mid filming at work? Yep! Oh the glamor of growing new humans 🤣. But in all seriousness, we feel so lucky and I can’t wait to bring you guys along for the remaining months of this baby #2 journey!! *Shout out to the one and only Cinderella for helping me with this pic yesterday 🥰 ❤️❤️❤️❤️

A post shared by Camilla Luddington (@camillaluddington) on Mar 9, 2020 at 12:29pm PDT

Camilla Luddington á von á sínu öðru barni. Hér er …
Camilla Luddington á von á sínu öðru barni. Hér er hún í veislu fyrir BAFTA-verðlaunin í Los Angeles í lok janúar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert