Hlustaðu frítt á Disney-bækur í tvær vikur

Þú getur hlustað frítt á Ævintýralega hvolpagæslu.
Þú getur hlustað frítt á Ævintýralega hvolpagæslu.

Ertu heima með börnin vegna lokunar í leik- og grunnskólum landsins og ert uppiskroppa með afþreyingu? Ef svo er þá býður Disney-klúbburinn upp á fríar hljóðbækur í tvær vikur, sem ætti svo sannarlega að hressa þig og börnin við. 

Það eina sem þú þarft að gera er að fara á hlekkinn hér fyrir neðan og hefja þessa góðu vegferð.

Það er ekkert því að vanbúnaði að koma sér vel fyrir uppi í sófa og hlusta á hljóðbækur með börnunum sínum.

Inni á veitunni er að finna bækur eins og Ævintýraleg hvolpagæsla, Jasmín og pólókeppnin, Guffi og sleðakeppnin, Gúri fer út að leika og Mjallhvít kemur til bjargar. 

Það eina sem þú þarft að gera er að smella HÉR og byrja að hlusta. 

mbl.is

Stöndum saman

Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert