Gummi Ben. verður afi á árinu

Albert og Guðlaug eiga von á sínu fyrsta barni.
Albert og Guðlaug eiga von á sínu fyrsta barni. skjáskot/Instagram

Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson og kærasta hans Guðlaug Elísa eiga von á sínu fyrsta barni saman. Albert er sonur íþróttafréttamannsins Guðmundar Benediktssonar, betur þekktur sem Gummi Ben. Gummi Ben. bætir því við sig titli á árinu og verður afi.

Albert og Guðlaug tilkynntu óléttuna á Instagram í dag en von er á frumburðinum í september. Albert spilar með liðinu AZ Alkmaar og er búsettur í Hollandi.

Barnavefur mbl.is óskar þeim innilega til hamingju!

View this post on Instagram

September 2020 💘

A post shared by Albert Gudmundsson (@albertgudmundsson) on Mar 18, 2020 at 6:26am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert