Foreldrar hugi að samgangi barna

Ekki er mælt með því að börn leiki saman eftir …
Ekki er mælt með því að börn leiki saman eftir skóla. Eggert Jóhannesson

Nú þegar börnum er skipt í hópa í skólanum og ákveðin fjarlægðarmörk sett hafa margir foreldrar vel því fyrir sér hvaða reglur gilda eftir skólatíma.

Landssamtökum foreldra, Heimili og skóli, barst fyrirspurn frá foreldrafélagi um samgang barna efitr skólatíma á meðan samkomubanni stendur. Á vef þeirra kemur fram að samkvæmt tilmælum frá sóttvarnalækni er ekki hvatt til þess að börn leiki saman eftir skóla. 

„Foreldrar eru hvattir til þess að takmarka samgang allra í fjölskyldunni við aðra utan fjölskyldunnar sem mest og hafa í huga að halda ákveðinni fjarlægð á milli einstaklinga ásamt hreinlætisaðgerðum. Þetta gildir hvort sem um er að ræða vini eða ættingja.

Foreldrar bera að sjálfsögðu ábyrgð á því hvernig þeir útfæra þessar grunnreglur um samskipti en í raun þýðir þetta að ekki er hvatt til þess að börn séu að hittast til að leika eða læra saman að óþörfu,“ segir á vef Heimila og skóla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert