Eminem stoltur af dótturinni

Eminem er stoltur af dóttur sinni.
Eminem er stoltur af dóttur sinni. Samsett mynd

Rapparinn Eminem segist vera stoltur af dóttur sinni, Hailie Scott Mathers. Hún er útskrifuð úr háskóla með gráðu í sálfræði og er áhrifavaldur á Instagram.

Eminem ræddi um afrek dóttur sinna í hlaðvarpsþætti Mike Tyson, Hotboxin'. „Nei hún á engin börn, hún á kærasta og gengur vel. Ég er mjög stoltur af henni. Hún útskrifaðist úr háskóla,“ sagði Eminem þegar hann var spurður út í dóttur sína. 

Hailie átti Eminem með æskuást sinni, Kim Scott, árið 1995. Hailie útskrifaðist úr Chippewa Valley High School og nældi sér svo í gráðu í sálfræði við Michigan State University. Í háskólanum kynntist hún kærastanum sínum Evan McClintock. 

Í viðtali við Daily Mail sumarið 2018 sagði Hailie að hún og faðir hennar væru mjög náin og að hann styddi við bakið á henni. 

View this post on Instagram

(this shirt had pockets 🙌🏼)

A post shared by Hailie Jade (@hailiejade) on Sep 3, 2019 at 5:50pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert