Uppáhaldshjón Hollywood fjölga sér

Leighton Meester og Adam Brody eiga von á barni.
Leighton Meester og Adam Brody eiga von á barni. Samsett mynd

Hollywood-leikararnir Adam Brody og Leighton Meester eru í miklu uppáhaldi hjá mörgum eilífðarunglingum. Nú eiga hjónin von á öðru barni sínu að því fram kemur á vef Daily Mail. Hjónin eignuðust fyrsta barnið árið 2015. 

Hjónin eru vön að halda einkalífi sínu fyrir sig en götuljósmyndari náði þó myndum af hjónunum í Los Angeles á dögunum. Meester var með þó nokkuð stóra óléttukúlu en Brody var með dóttur þeirra, Arlo Day, í kerru. 

Hjónin slógu í gegn í sjónvarpsþáttum ætluðum unglingum sem hófu göngu sína árið 2003 og 2007. Það var eins og blautur draumur hjá mörgum þegar það fréttist að leikarinn sem lék Seth Cohen í The O.C. væri byrjaður með leikkonunni sem lék Blair Waldorf í Gossip Girl. Hjónin kynntust við tökur á myndinni The Oranges árið 2011 og giftu sig 2014. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert