Deildi áður óséðu myndbandi af látnum föður sínum

Paul Walker
Paul Walker EPA

Meadow Walker, dóttir leikarans Pauls Walkers, deildi áður óséðu myndbandi af pabba sínum í gær. Myndbandið virðist vera tekið á afmæli leikarans fyrir nokkrum árum. 

Meadow skrifar undir myndbandið að hún hafi haldið að hún myndi aldrei deila þessu myndbandi en ákvað að gera það til að gleðja alheiminn. Faðir hennar Paul lést í bílslysi árið 2013, aðeins nokkrum vikum eftir 15 ára afmæli dóttur sinnar.

Í myndbandinu má sjá Paul opna dyr og bregða þegar dóttir hans bregður honum og óskar honum svo til hamingju með daginn. Hann leggst svo á rúmið í hláturskasti og Meadow hoppar í fangið á honum. 

Meadow er 21 árs í dag og minnist föður síns reglulega á samfélagsmiðlum. Fyrir nokkrum vikum deildi hún fallegri mynd af þeim feðginum.

View this post on Instagram

I never thought I’d share this. But it felt right. Be good. I love you. Stay safe. xx

A post shared by Meadow Walker (@meadowwalker) on Apr 7, 2020 at 2:23pm PDT

View this post on Instagram

ultimate apocalypse buddy

A post shared by Meadow Walker (@meadowwalker) on Mar 16, 2020 at 3:06pm PDT



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert