Travolta minnist látins sonar síns

John Travolta og Jett sonur hans, sem lést aðeins 16 …
John Travolta og Jett sonur hans, sem lést aðeins 16 ára gamall. Skjáskot/Instagram

Jett Travolta, sonur leikarans John Travolta og Kelly Preston, hefði orðið 28 ára í fyrradag, hefði hann lifað. Travolta og Preston minnast sonar síns í fallegum kveðjum á Instagram.

Jett lést í janúar árið 2009 í fjölskyldufríi á Bahamaeyjum. Jett, þá 16 ára, rak höfuðið illa í baðkar eftir að hann fékk flog á Old Bahama Bay-hótelinu á Grand Bahamaeyjunni.

„Til hamingju með afmælið Jetty! Við elskum þig,“ skrifaði Travolta við fallega mynd af þeim feðgum. Preston deildi einnig mynd af sjálfri sér og Jett og skrifaði „Hamingjuóskir til okkar besta Jetty, við elskum þig“.

Ella, dóttir þeirra hjóna og systir Jett, deildi fjölskyldumynd af þeim og skrifaði „Hamingjuóskir til bróður míns Jett, ég elska þig svo mikið“.

Travolta og Preston eiga einnig soninn Benjamin, sem er 9 ára.

View this post on Instagram

Happy Birthday Jetty! We love you! ❤️

A post shared by John Travolta (@johntravolta) on Apr 13, 2020 at 7:44pm PDT

View this post on Instagram

Happy Birthday to our sweetest Jetty, we love you!! 💖✨

A post shared by Kelly Preston (@therealkellypreston) on Apr 13, 2020 at 8:32pm PDT

View this post on Instagram

Happy Birthday to my brother Jett, I love you so much ❤️❤️❤️

A post shared by Ella Travolta (@ella.travolta) on Apr 13, 2020 at 8:02pm PDT




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert