One Direction-stjarna á von á barni

Zayn Malik og Gigi Hadid eiga von á sínu fyrsta …
Zayn Malik og Gigi Hadid eiga von á sínu fyrsta barni saman. mbl

One Direction-stjarnan Zayn Malik og fyrirsætan Gigi Hadid eiga von á sínu fyrsta barni saman. Foreldrarnir verðandi hafa ekki tilkynnt um erfingjann sjálf en bæði ET og TMZ staðfesta að þau eiga von á barni saman. 

Malik og Hadid kynntust fyrst árið 2015 og í nóvember sama ár var greint frá því að þau væru í sambandi. Þau hættu saman í mars 2018 en fundu fljótt aftur ástina í örmum hvort annars. Í janúar 2019 bárust svo fréttir að þau væru hætt saman. Þau byrjuðu svo aftur saman í lok síðasta árs og nú eiga þau von á barni saman. 

Samkvæmt heimildum ET er Hadid gengin 20 vikur á leið. 

„Gigi hefur gætt þessa leyndarmáls og aðeins sagt sinni nánustu fjölskyldu og vinum, hún er gengin nokkra mánuði á leið. Þegar Gigi og Zayn byrjuðu aftur saman í lok síðasta árs var eins og þau hefðu aldrei hætt saman og vissu að það sem þau eiga saman er einstakt. Parið og fjölskyldur þeirra eru himinlifandi,“ sagði heimildarmaður ET.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert